Slökkvilið var kallað út rétt eftir miðnættið þegar tilkynning barst um eld í þaki á húsi við Barónsstíg í Reykjavík.
Kveikt hafði verið í arni í húsinu og logaði eldurinn svo glatt að eldtungurnar stóðu út um reykháfinn og var mikill reykur. Tveir menn voru í húsinu þegar lögreglan mætti á svæðið og voru þeir handteknir enda á húsið að vera mannlaust, en um er að ræða húsnæði sem áður hýsti veitingastaðinn Argentínu Steikhús.
Slökkviliðsmenn slökktu í arninum og kældu síðan reykháfinn sjálfan og svæðið þar í kring til öryggis. Málið er í rannsókn.
Þetta kom fram á vef Vísis.