Tilkynnt var um eld í húsnæði við Bittuháls á sjötta tímanum í dag og var allt tiltækt slökkvilið höfuðborgarsvæðisins sent á vettvang.
Eldur reyndist vera í rafmagnstöflu hússins og fylgdu þessu miklar sprengingar og eldglæringar. Kalla þurfti til Orkuveitunnar sem sló út rafmagnið á húsinu svo hægt væri að fara inn í húsið.
Eftir að rafmagnið var slegið af gekk slökkvistarf vel og hratt fyrir sig en reykræsting stendur yfir og enn er talsverð vinna eftir á vettvangi. Talið er að húsið hafi verið mannlaust en húsnæðið er í eigu Esju gæðafæðis, kjötvinnslu.