Auglýsing

Eldur logar í sumarhúsi

Brunavarnir Árnessýslu berjast nú við eld í sumarbústað við Biskupstungnabraut.

Bústaðurinn er talinn vera mannlaus og segir Haukur Grönli, varaslökkviliðsstjóri  Brunavarna Árnessýslu, að þrátt fyrir að mikill hiti sé í eldinum sé ekki talin hætta á að eldurinn breiðist út í nærliggjandi sumarbústaði.

Einnig er mikill gróður í kringum húsið en Haukur segist ekki vita til þess að kviknað sé í honum.

„En það er mikill hiti og við erum með dælubíl og tankbíl á leiðinni til að bregðast við.“ segir hann í samtali við Fréttablaðið.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing