Emilíana Torrini var gestur Vikunnar með Gísla Marteini á Rúv í gærkvöldi.
Þar tók hún titillagið úr leikhúsverkinu Vertu Úlfur, sem sýnt er í Þjóðleikhúsinu. Með henni voru Óskarsverðlaunahafinn Markéta Irglová og Valgeir Sigurðsson tónskáld. En Emilíana og Markéta sömdu lagið saman.