Rapparinn Emmsjé Gauti hélt í gær frumsýningarpartý á efri bílastæðaplani Smáralindar. Tilefnið var útgáfa myndbandsins við lagið „Bleikt ský“, af samnefndri væntanlegri plötu rapparans.
Vegna gildandi samkomubanns gat hann ekki haldið hefðbundið frumsýningarpartý en eins og hann orðaði það sjálfur á Facebook síðu sinni þá „kalla vandamál á lausnir“ og var brugðið á það ráð, í samstarfi við Smárabíó og Smáralind, að halda frumsýningarpartý-bílabíó. Lagið var spilað kl 20:30 og var hljóði var útvarpað í alla bílana á svæðinu en eftir frumsýninguna var myndin Dalalíf sýnd.
Mikill fjöldi fólks mætti í „partýið“ og þurfti á tímabili að vísa fólki frá.