Engin kona var bókuð á Hip Hop viðburði á Menningarnótt í Reykjavík. Tveir Hip Hop viðburðir voru haldnir yfir hátíðina og af 14 atriðum var ekki ein kona sem kom fram.
Reykjavíkurdætur vöktu athygli á þessu á samfélagsmiðlum sínum þar sem þær greindu frá því að það hafi ekki verið haft samband við þær, þrátt fyrir að þær séu besta „up and coming“ hip hop band í Evrópu. Þær bæta því svo við að það hefði verið ólíklegt að skipuleggjendur hefðu haft efni á þeim.
Tveir Hip Hop viðburðir á Menningarnótt. Ekki EIN kvk bókuð, ekki ein einasta.
Bara svo því sé haldið til haga þá var ekki einu sinni haft samband við okkur (besta up and coming hip hop band í evrópu ) þótt þeir hefðu ólíklega haft efni á okkur pic.twitter.com/IyLEVbCTFq— Reykjavíkurdætur (@RVKDTR) August 24, 2019