Tónlistarfólkið Eyþór Ingi Gunnlaugsson og Lovísa Elísabet Sigrúnardóttir, eða Lay Low, hafa sent frá sér lagið „Aftur heim til þín“.
Þetta er í fyrsta sinn sem þau gefa út lag saman .
„Við Lay Low þekkjumst en höfum aldrei spilað saman fyrr en nú. Við kynntumst raunar í gegnum sameiginlegan vin okkar Ragnar Bjarnason heitinn. Ég og Lay Low ræddum það stundum að gera tónlist saman en segja má að aðgerðaleysið í samkomubanninu í vor hafi ýtt okkur af stað. Við ákváðum að sameina krafta okkar og við erum mjög sátt með lagið. Þetta er búið að vera skemmtilegur undirbúningur og það er gaman að vinna með henni í þessu verkefni. Vinkona mín Nína Richter samdi textann og einnig grunninn að laginu ásamt æskuvini mínum Baldri Hjörleifssyni en ég og Lay Low tókum það svo lengra.
Við ákváðum að frumsýna lagið nú fyrir verslunarmannahelgina og sérstaklega í ljósi frétta um að nú á að herða aftur aðgerðir vegna Covid-19. Titill lagsins passar kannski vel miðað við ástandið þessa dagana. Það eru allir að fara heim aftur,“ segir Eyþór Ingi í samtali við mbl.is
Hér fyrir neðan má hlusta á lagið Aftur heim til þín.