Karlmaður, sem var að vinna við sumarhús, féll niður þrjá metra í gær þegar hann datt úr stiga. Hann skall með hnakkann á steypt gólf og missti meðvitund stutta stund. Flytja þurfti manninn með sjúkrabíl til aðhlynningar á bráðamóttöku. Þetta kemur fram í dagbók lögreglu.
Í dagbókinni kemur einnig fram að annar maður hafi verið fluttur á bráðamóttöku um klukkan eitt í nótt. Var hann með skerta meðvitund eftir fall.