Ferðagjöfin svokallaða er hluti af aðgerðapakka stjórnvalda og er hugsuð sem stuðningur við íslenska ferðaþjónustu, eftir kórónufaraldurinn.
Ferðagjöfin er nú aðgengileg inn á ferdagjof.island.is
Hver Íslendingur fæddur 2002 eða fyrr fær inneign að upphæð 5000 krónur og er gjöfin í rafrænu formi. Hægt er að sjá hvaða fyrirtæki taka við ávísuninni inni á vefnum ferdalag.is
Hægt verður að nota Ferðagjöfina til næstu áramóta.