Auglýsing

Fjögurra bíla árekstur á Suðurlandsvegi

Fimm voru fluttir á slysadeild eftir fjögurra bíla árekstur á Suðurlandsvegi við Heiðmerkurveg á tíunda tímanum. Að sögn lögreglu eru tveir alvarlega slasaðir og voru þrír fluttir á slysadeild með minniháttar áverka.

Beita þurfti klippum til að losa tvo farþega úr bílunum að sögn Slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu.

Eftir slysið hefur einn velt bíl sínum á hjáleið um Hafravatnsleið. Hann var fluttur á slysadeild til aðhlynningar. Varðstjóri umferðardeildar lögreglunnar beinir til fólks að fara varlega um Hafravatnsleið vegna hálku.

Þetta kom fram á vef Rúv.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing