Landsliðsmarkmaðurinn Björgvin Páll Gústavsson greindi frá því á skemmtilegan hátt í morgun á Facebook síðu sinni að von sé á fjórða barninu.
Hann og kona hans eiga þrjú börn fyrir og verður þetta því fjórða barn þeirra hjóna.
Óvæntur glaðningur! ❤️ Fjórða krílið á leiðinni! ? Margt “skrítið” í þessu lífi en eftir 9 meðferðir og þrjú börn datt inn ein óvænt en mjög velkomin ólètta. Hlökkum til að verða fleiri í kringum áramótin…, skrifar Björgvin.