Borið hefur verið kennsl á einstaklingana þrjá sem létust í brunanum á Bræðaborgarstíg þann 25. júní síðastliðinn. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.
Þau sem létust voru öll pólskir ríkisborgarar og að ósk aðstandenda verða nöfn þeirra ekki gefin upp.
Rannsókn lögreglu á brunanum miðar vel en lögregla getur ekki tjáð sig frekar um stöðu mála að svo stöddu.