Kim Kardashian sagði frá því í bloggfærslu í dag að hún hafi borðað fylgjuna eftir að hún og Kanye West eignuðust annað barn sitt á dögunum, soninn Saint West.
Í færslunni segist hún hafa heyrt margar sögur af mömmum sem borðuðu ekki fylgjuna og þjáðust af fæðingarþunglyndi. „En svo eignuðust þær annað barn og innbyrtu fylgjuna í pilluformi og urðu ekki þunglyndar,“ segir hún.
Þannig að ég hugsaði bara: „Af hverju ekki?“ Ég hef engu að tapa!
Kim segist ekki vera ginkeypt fyrir heildrænum meðferðum en segist þó hafa ákveðið að innbyrða fylgjuna í pilluformi. Þar með fetaði hún í fótspor Kourtney, systur sinnar, sem innbyrti fylgjuna eftir að hún eignaðist þriðja barn sitt.
Samkvæmt umfjöllun Huffington Post bendir fátt til þess að fylgjan komi í veg fyrir fæðingarþunglyndi.