Salman bin Abdul Aziz al-Saud, kóngur Sádí–Arabíu lenti í vandræðalegri uppákomu þegar hann heimsótti Rússland á miðvikudaginn. Þegar Salman lenti í Moskvu og ætlaði að fara frá borði til að hitta vin sinn, Vladimir Putin, klikkaði rúllustiginn og kóngurinn sat fastur.
Eftir að stiginn stöðvaðist ákvað Salman að bíða í drykklanga stund í von um að tækið sem er að sjálfsögðu úr gulli myndi hrökkva í gang á ný en allt kom fyrir ekki.
Hann neyddist að lokum til að labba niður nokkrar tröppur en myndband af atvikinu hefur farið sem eldur í sinu um netheima í dag.