Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, og eiginkona hans Melania Trump hafa bæði greinst með kórónuveiruna. Þessu greinir forsetinn frá á Twitter.
„Við forsetafrúin greindumst með COVID-19 í kvöld. Við munum hefja einangrun og bataferlið strax. Við komumst í gegnum þetta SAMAN!,“ skrifar forsetinn.
Tonight, @FLOTUS and I tested positive for COVID-19. We will begin our quarantine and recovery process immediately. We will get through this TOGETHER!
— Donald J. Trump (@realDonaldTrump) October 2, 2020