Guðni Th Jóhannesson, forseti Íslands, er kominn í sóttkví til 9. nóvember.
Í tilkynningu frá skrifstofu forseta Íslands kemur fram að starfsmaður á Bessastöðum hafi greinst með Covid-19. Þar segir einnig að starfsmaðurinn sé nær einkennalaus.
Guðni hefur engin einkenni veirunnar og aðrir í fjölskyldu hans þurfa ekki að vera í sóttkví.