,,Verðlaunin Framúrskarandi ungir Íslendingar sem veitt eru árlega af JCI Íslandi, eru fyrst og fremst hvatningarverðlaun til ungs fólks sem er að takast á við krefjandi og athyglisverð verkefni. Þetta er viðurkenning og hvatning fyrir ungt fólk sem kemur til með að hafa áhrif í framtíðinni,“ segir í tilkynningu frá JCI á Íslandi.
Á hverju ári er auglýst eftir tilnefningum og hver sem er getur tilnefnt framúrskarandi ungan Íslending. Næst eru 3 verðlaunahafar valdir af sérstakri dómnefnd.
Verðlaunin eru veitt af JCI í tíu flokkum:
- Störf á sviði viðskipta, frumkvöðla og/eða hagfræði.
- Störf á sviði stjórnmála, ríkismála eða lögfræði.
- Leiðtogar/afrek á sviði menntamála.
- Störf /afrek á sviði menningar.
- Störf á sviði siðferðis og/eða umhverfismála.
- Framlag til barna, heimsfriðar og/eða mannréttinda.
- Störf á sviði mannúðar eða sjálfboðaliðamála.
- Störf á sviði tækni og vísinda.
- Einstaklingssigrar og/eða afrek.
- Störf /uppgötvanir á sviði læknisfræði.
Hægt er að tilnefna á heimasíðu verkefnisins, www.framurskarandi.is. Skilyrði fyrir tilnefningu er að einstaklingar hafi með sýnilegum hætti skarað fram úr, verið góðar fyrirmyndir og gefið af sér til samfélagsins. Verðlaunin verða veitt í október af forseta Íslands, sem er verndari verkefnisins, en opið er fyrir tilnefningar til 13. september næstkomandi.