Annað kvöld klukkan klukkan 21 verður Friðarsúlan í Viðey, listaverk Yoko Ono, tendruð í 14. sinn á fæðingardegi John Lennon.
Hann hefði orðið áttræður á árinu og mun súlan loga til 8. desember, sem er dánardagur Lennon.
Vegna COVID-19 verður enginn viðburður í tengslum við tendrunina en hægt verður að fylgjast með í beinu streymi frá eyjunni. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri mun flytja stutt ávarp og að því loknu verður kveikt á Friðarsúlunni.
Fólk er hvatt til þess að fylgjast með tendrun Friðarsúlunnar og hugsa um frið. Beint streymi verður á síðunni imaginepeacetower.com, og á vefsíðu og facebooksíðu Reykjavíkurborgar.