Nú á dögunum fór Mynto í loftið en það er app sem heldur utan um helstu vefverslanir landsins.
„Stórar vefverslanir með mörgum vörumerkjum þekkjast víða erlendis og við vildum bjóða upp á sömu þjónustu hér á landi. Frá því að Mynto fór í loftið í síðustu viku hafa nokkur þúsund notendur sótt appið og salan hefur farið fram úr okkar væntingum,“ segir Heba Fjalarsdóttir hjá Mynto í viðtali við mbl
„Við teljum okkur því hafa sýnt fram á að eftirspurnin sé til staðar fyrir þjónustu eins og Mynto og ætlum okkur að halda áfram að bæta og þróa þjónustuna.“
Mynto appið er aðgengilegt í snjallsímum en einnig er nú unnið að því að klára vefinn, Mynto.is, þar sem hægt verður að versla.
„Við sjáum fram á að tengja tugi vefverslana á næstu vikum og því bæta vöruúrvalið verulega. Við erum einnig að skoða tengingar við önnur vefverslunarkerfi, en eins og er tengjumst við einungis vefverslunum sem nota WooCommerce eða Shopify,“ segir Heba.