Auglýsing

Gætum átt von á kröftugri gosum: „Tímaspursmál hvenær eldgosin koma upp á óþægilegum stöðum“

„Þetta er þéttbýlasti staðurinn á landinu. Það er bara tímaspursmál hvenær eldgosin koma upp á óþægilegum stöðum,“ segir Ármann Höskuldsson, prófessor í eldfjallafræði við Háskóla Íslands, í samtali við Morgunblaðið.

Landris er hafið aftur á Reykjanesi og er miðja þess nú nærri Svartsengi. Greint var frá því um helgina að risið gangi talsvert hraðar fyrir sig en áður og er það líklega af völdum kvikuinnskots.

„Ef það verða lítil gos eins og eru búin að vera 2021 til 2023, þá höfum við sæmilegan tíma til að bregðast við og skoða málin. En það verður líka að segjast að þau gos voru óvenju smá. Þannig að við eigum von á því að það komi aðeins kröftugri gos í framtíðinni,“ segir hann við Morgunblaðið.

Ármann segir við ennfremur að það sé aðeins tímaspursmál hvenær eldgos verða nærri mikilvægum innviðum á Reykjanesskaga og stofni þeim í hættu.

„Það er klárt að það gerist, það er bara spurning um hvenær. Þess vegna verða menn að halda áfram að undirbúa sig og hafa hlutina klára,“ er haft eftir honum.

Hann bætir við að ef gos kæmi upp nærri Svartsengi yrði það að líkindum hraungos eins og við þekkjum úr síðustu gosum nærri Fagradalsfjalli. Spurningin sé þó hversu öflug gosin geti orðið.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing