Fyrrum hnefaleikakappinn George Foreman, sem er einna þekktastur fyrir grillin sín, er nú staddur á Íslandi. Foreman deildi mynd af sér með íslenska hestinum á Twitter.
Hann sagði að þrátt fyrir að hann hafi ekki séð mörg tré hér á landi sé loftið ferskt. Þá var hann ánægður með kranavatnið okkar og sagði að það bragðaðist eins og úrvals flöskuvatn.
Alltaf eitthvað að grilla í okkur. https://t.co/SMDrXxRoFL
— Gummi Ben (@GummiBen) August 28, 2019
George Forman er á Íslandi!!!! https://t.co/qNU8OTVxgf
— Halldór Halldórsson (@DNADORI) August 28, 2019