Leikarinn og leikstjórinn ástsæli Gísli Rúnar Jónsson er látinn. Þetta kemur fram í tilkynningu sem fjölskylda hans sendi frá sér.
„Með djúpri sorg tilkynnum við fjölskyldan að okkar ástkæri Gísli Rúnar Jónsson leikari, leikstjóri, handritshöfundur og þúsundþjalasmiður er látinn,“ segir í tilkynningunni.
„Fjölskyldan syrgir kærleiksríkan og einstakan fjölskylduföður og þjóðardýrgrip.“
Gísli Rúnar lést á heimili sínu í gær.