Samkvæmt hertum sóttvarnareglum yfirvalda, sem tilkynntar voru í gær, er nú krafa um að sex ára börn og eldri beri grímu í strætisvögnum. Þetta kemur fram í tilkynningu sem Strætó sendi frá sér í gær.
Í tilkynningunni segir að frá og með deginum í dag, 31. október, séu börn fædd 2015 og síðar undanþegin grímuskyldu um borð í Strætó. Þetta gilti áður um börn fædd 2005 og síðar.
Þá verða vagnar Strætó áfram undanþegnir reglum um fjöldatakmarkanir.
„Andlitsgrímuskylda verður áfram gildi fyrir alla farþega og vagnstjóra hjá Strætó á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni.“