Leikkonan Gwyneth Paltrow var vel útbúin í flugi sínu til Parísar á dögunum og tekur greinilega enga sénsa þegar kemur að kórónaveirunni.
Hún birti mynd af sér á Instagram með svarta andlitsgrímu og skrifar við hana:
„Á leið til Parísar. Með ofsóknaræði? Skynsöm? Óróleg? Róleg? Heimsfaraldur? Áróður? Paltrow ætlar að sofa með þessa í vélinni. Ég hef leikið í þessari mynd. Verið örugg. Ekki takast í hendur. Þvoið hendurnar á ykkur oft og reglulega.“
Paltrow lék í kvikmynd árið 2011, Contagion, og er það væntanlega myndin sem hún vitnar í. Myndin fjallar um veiru sem byrjar í Hong Kong og dreifir sér til annarra landa. Leikur þar Paltrow sjúkling sem ferðast frá Asíu til Ameríku og tekur veiruna með sér.