Gamanþáttaröðin Venjulegt fólk var frumsýnd í Sjónvarpi Símans Premium árið 2018 og sló algjörlega í gegn. Þáttaröðin var spiluð yfir 50,000 sinnum á aðeins þremur dögum og náðust yfir 700,000 spilanir í Sjónvarpi Símans Premium fyrstu vikuna.
Með aðalhlutverk í þáttunum fara leikkonurnar Vala Kristín og Júlíana Sara. Þær skrifa einnig þættina ásamt Dóra DNA og Fannari úr Hraðfréttum, sem leikstýrir einnig þáttunum. Hilmar Guðjónsson og Arnmundur Ernst leika einnig í þáttunum sem fjalla um dramað sem fylgir lífsgæðakapphlaupi tveggja vinkvenna.
Þriðja þáttaröð af Venjulegu Fólki er væntanleg í október í Sjónvarp Símans Premium. Hér fyrir neðan má sjá sýnishorn úr nýju þáttaröðinni.