Söngvarinn og tónlistarmaðurinn Harry Styles og leikkonan Heidi Gardner léku Íslenskt par í grínþættinum Saturday Night Live um helgina.
Í þættinum leika þau Magnús og Dísu, par sem á von á barni og sækja saman fæðingarnámskeið.
Monta þau sig meðal annars af því að þeim gangi ofsalega vel á meðgöngunni, að þau hafi atvinnu að því að þykjast syngja og að þau séu áhrifavaldar á Instagram. Þá ræða þau einnig um kynlífið á meðgöngunni, sem fór öfugt ofan í pörin á námskeiðinu. Þau Dísa og Magnús eru ekki mjög sleip í enskunni og segir Magnús að Dísa hafi lært ensku af Instagram.
Sjáðu brot úr þættinum hér.