Það tók um 12 klukkutíma að umbreyta hinni 46 ára gömlu Heidi Klum í einhverskonar hamflett skrímsli.
Klum hélt sitt árlega hrekkjavökupartí í tuttugasta skipti í New York í nótt og er nokkuð víst að hún hafi toppað sig hvað varðar búninginn í ár. En hún er þekkt fyrir að fara alla leið þegar kemur að Halloween búningum.
Gestir og gangandi í New York gátu fylgst með hinni gullfallegu Klum verða óþekkjanlega í gervi skrímslis í gegnum glugga í verslun Amazon, á Manhattan, í New York. Klum sýndi líka frá öllu á Instagram og er áhugavert að fylgjast með ferlinu.