Einn heppinn lottóspilari var með allar tölur réttar í úrdrætti gærkvöldsins. Hann hafði keypt miðann í gegnum Lottó-appið og er nú tæpum 42 milljónum króna ríkari. Sá sem var með allar tölur réttar í Jókernum hafði einnig notað Lottó-appið og á nú tvær milljónir króna.
Tveir fengu annan vinning og voru með fjórar réttar af fimm tölum auk bónustölu og fá rúmar 282 krónur í sinn hlut. Þeir keyptu miðann sinn í Happahúsinu í Kringlunni í Reykjavík og í Fjarðarkaupum í Hafnarfirði.
Sjö miðar voru með fjórar tölur í réttri röð ó Jókernum og fá 100 þúsund krónur í sinn hlut.
Tölur kvöldsins voru eftirfarandi: 2 – 17 – 18 – 25 – 37 – 20