Heppinn áskrifandi var einn með allar Lottótölurnar réttar að þessu sinni og fær hann rúmlega 9 milljónir króna í sinn hlut. Þá var einn miðahafi með bónusvinninginn og fær rétt tæpar 400 þúsund krónur en sá keypti miðann í Lottó-appinu.
Sjö miðaeigendur voru svo með 2. vinning í Jóker í kvöld og fær hver þeirra 100 þúsund krónur. Þrír miðanna eru í áskrift, þrír voru keyptir á lotto.is og einn í appinu.