Fyrsti vinningur gekk ekki út að þessu sinni en heppinn Norðmaður var einn með 2. vinning og hlýtur hann rúmar 74 milljónir króna.
Heppinn miðahafi var einn með hinn al-íslenska 3. vinning og hlýtur hann rétt tæpar 2 milljónir króna . Miðinn var keyptur í Olís Langatanga, Langatanga 1 í Mosfellsbæ.
Sex voru með 4 réttar tölur í réttri röð í Jóker og hlýtur hver þeirra 100 þúsund krónur. Miðarnir voru keyptir á eftirtöldum stöðum ; Skálanum Þorlákshöfn á Óseyrarbraut 15 í Þorlákshöfn, N1 Stóragerði í Reykjavík, Olís Lagarfelli á Egilsstöðum, N1 Hringbraut í Reykjavík, einn miðinn var í áskrift og einn miðinn var keyptur á heimasíðunni lotto.is.