Hildur Guðnadóttir vann BAFTA-verðlaun á sunnudaginn fyrir tónlist sína í kvikmyndinni Joker. Hún hefur verið á sannkallaðri sigurgöngu síðustu vikurnar og sópað til sín verðlaunum.
Hún hefur einnig vakið mikla athygli fyrir klæðaburð á öllum þessum verðlaunahátíðum og var hún meðal annars á lista Vogue yfir best klæddu stjörnurnar á hátíðinni á sunnudaginn. Á listanum með henni eru meðal annars Katrín hertogaynja og leikkonurnar Margot Robbie og Renee Zellweger.