Hjólreiðafélag Akureyrar og veitingastaðurinn Greifinn standa fyrir hjólreiðahátíð á Akureyri og nágrenni næstu daga.
Keppt verður í hinum ýmsu greinum, jafnt innanbæjar sem utan.
Fimmtudagur
Reiknað er með umferðartakmörkunum á Hlíðarbraut og Hlíðarfjallsvegi að kvöldi fimmtudags þegar keppendur í Gangamóti koma í bæinn frá Siglufirði og hjóla að endamörkum í Hlíðarfjalli og á svæði Bílaklúbbs Akureyrar. Þessum götum verður ekki lokað en umferð verður stýrt og má búast við töfum.
Laugardagur
Kaupvangsstræti verður lokað bílaumferð frá Hafnarstræti og upp að Eyrarlandsvegi milli kl. 17 og 21 en þá verður svokallaður Brekkusprettur í Listagilinu. Kirkjutröppubrun, frá Rósenborg og niður að Hótel KEA, er á dagskrá kl. 19 og verður umferðarstýring á Eyrarlandsvegi í skamman tíma.
Sunnudagur
Á sunnudag, fyrir hádegi, verður Goðanesi, Baldursnesi og Óðinsnesi lokað að hluta eða öllu leyti vegna Criterium móts.
Hjólreiðahátíðin hefst í kvöld,miðvikudag, og stendur fram til sunnudags. Á heimasíðu Hjólreiðafélags Akureyrar má finna allar helstu upplýsingar og dagskrá hátíðarinnar.