Höfundur og flytjandi Þjóðhátíðarlags Vestmannaeyja árið 2021 er Hreimur Örn Heimisson. Lagið ber heitið „Göngum í takt“ og fjallar um eftirvæntinguna sem að kraumar inn í manni þegar að maður er að labba niður í dal, gegnum hliðið og heyrir í drununum úr brekkunni þegar þúsundir fólks hafa þjappað sér saman og hátíðin er byrjuð.
Hreimur fékk Vigni Snæ Vigfússon með sér í að pródúsera lagið. Magni, sem söng með Hreim árið 2001 í Þjóðhátíðarlaginu Lífið er yndislegt, verður einnig með að þessu sinni ásamt Emblu Margréti 16 ára dóttur Hreims sem að syngur einnig í laginu.
Allir í bátana yfir á eyjuna förum í ferðalag
Ég vona að ég hitti þig, hátt upp í brekkunni
Við sitjum hlið við hlið.
Þegar eldar lýsa upp ský
Við erum komin saman á ný
Og Þessi hátíð byrjar upp á nýtt
Við förum inn í dal, við hittum ykkur þar
Syngjum saman öll, göngum í takt og búum til minningar
Við förum inn í dal, við hittum ykkur þar
Syngjum saman öll, göngum í takt og búum til minningar
Við sitjum á sama stað, horfum á brennuna, fuðra upp í nóttna
Svo syngjum við söngvana, kannski missum við röddina
En öllum er sama um það
Og þega eldar lýsa upp ský
Við erum komin saman á ný
Þessi hátíð byrjar upp á nýtt
Við förum inn í dal, við hittum ykkur þar
Syngjum saman öll, göngum í takt og búum okkur til minningar
Við förum inn í dal, við hittum ykkur þar
Syngjum saman öll, göngum í takt og búum okkur til minningar
Við komum alltaf aftur, Herjólfsdalur heilsar okkur
Við tökum höndum saman
Við erum Þjóðhátíð !!!