Á föstudaginn 11. Mars hefst hryllingsmynda hátíðin Frostbiter: Icelandic Horror Film Festival á Akranesi.
„Hátíðin er haldin í 7unda skipti og sýnum við fjöldan allan af stuttmyndum úr öllum heims hornum og erum með fjöldan allan af skemmtilegum viðburðum en frítt er á alla viðburði og sýningar á hátíðinni,“ segir í tilkynningu.
Sérstakur Gestur – Greg Sestero
Sérstakur gestur hátíðarinnar í ár er Greg Sestero en hann lék eftirminnilega Mark úr alræmdu kvikmyndinni The Room. En óskarsverðlaunamyndin The Disaster Artist var byggð á bók hans um gerð myndarinnar.
Greg er að koma á hátíðina sem leikstjóri en hann er að sýna frumraun sína í leikstjórn Miracle Valley á hátíðinni.
Miracle Valley
Miracle Valley fjallar um ljósmyndara og kærustu hans fara í eyðirmerkurferð í leit að afar sjaldgæfum fugli. Þar er sambandi þeirra fljótlega ógnað af illu afli, sem veldur því að þau horfast í augu við djöfla úr fortíð, nútíð og framtíð.
Greg mun mæta á hátíðina og svarar spurningum gesta um gerð myndarinnar. Myndin verður sýnd á föstudaginn 11. Mars á Frostbiter: Icelandic Horror Film Festival.