Harður árekstur varð í Hvalfjarðargöngum á sjötta tímanum í dag. Viðbragðsáætlun vegna slyss í göngunum var virkjuð og göngunum lokað í óákveðinn tíma.
Samkvæmt heimildum fréttastofu Vísis voru þrír um borð í borð í bílunum, allir með meðvitund eftir slysið og einn sem kenndi sér meins í öxl.
Ekki er vitað um umfang eða eðli slyssins.