Iceland Airwaves tónlistarhátíðin snýr aftur dagana 3. – 6. nóvember 2021 í miðborg Reykjavíkur.
„Í dag tilkynnum við tæplega 30 ný atriði og bætast þau við eina sterkustu dagskrá sem settur hefur verið saman í 20 ára sögu hátíðarinnar, en í heildina koma fram hátt í 100 atriði frá öllum heimshornum,“ segir í tilkynningu frá hátíðinni.
Íslendingar eru svo heppnir að ein virtasta og skemmtilegasta tónlistarhátíð heims fer fram í þeirra eigin bakgarði. Og nú er sérstök ástæða til að fagna því það stefnir í að Iceland Airwaves verði ein af fyrstu hátíðum heims til að fara fram í réttri mynd eftir að allur geirinn neyddist til að fara í pásu í heilt ár.
„Stærsta nafnið sem við tilkynnum í dag er hin breska Arlo Parks, en hér er á ferðinni heitast nýi listamaður Bretlands. Hún hlaut þrjár tilnefningar til Brit verðlaunanna í fyrra og hefur verið lýst sem „rödd kynslóðarinnar“.
Iceland Airwaves er tónlistarveisla sem á sér engan líka og fer fram í skemmtilegustu miðborg heims. Á þessum fjórum dögum má finna allt frá hjartnæmum píanótónleikum í kirkju til trylltra tónleika á börum og skemmtistöðum. „Okkar ástsæla íslenska tónlistarfólk spilar við hlið spennandi, upprennandi og þekktra hljómsveita frá öllum heimshornum og geta tónleikagestir hoppað á milli tónleikastaða og séð dagskrá eftir sínu höfði. Miðasala á Airwaves er í fullum gangi; verðið hækkar þegar nær dregur þannig að við mælum með að fólk tryggi sér miða núna strax.“ |