Hera Björk er ein þekktasta söngkona þjóðarinnar og stjarna hennar hefur margoft skinið skært. En vaxandi þyngd hennar var farin að valda henni mikilli vanlíðan og hún ákvað að leita sér hjálpar. Í heimildamyndinni Þung skref eftir Ingu Lind Karlsdóttur er fylgst með bataferli og upprisu Heru Bjarkar. Inga Lind fylgdi henni eftir í þrjú ár eða frá því að Hera Björk fór í aðgerð sem kallast magaermi.
Sjáðu brot úr myndinni sem kemur í tveimur hlutum í Sjónvarp Símans Premium á fimmtudag.