Þjóðhátíðarnefnd ÍBV var að gefa frá sér yfirlýsingu þar sem segir að Ingólfur Þórarinsson, betur þekktur sem Ingó Veðurguð, muni ekki annast brekkusöng á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum í ár.
Í tilkynningunni segir að þessi ákvörðun svari fyrir sig sjálf og verði ekki rædd frekar af hálfu nefndarinnar.