Fyrsti þáttur af nýja íslenska sakamálaþættinum Brot fór í loftið á RÚV í gærkvöldi.
Íslendingar hafa verið duglegir að láta í ljós skoðun sína á þættinum á Twitter, eins og sjá má hér fyrir neðan:
Meira um #brot er þessi stanslausa botnlaust drama. Hvert einasta atriði er drama, og ekkert smá. Svo er þessi tónlist til að ýta undir allt dramað. Það er eins og sagan sé auka atriði, bara skjóta á lögregluna og selja ofhlaðið drama.
— traustitj (@traustitj) December 27, 2019
Fyrsti þáttur bara fínn. Búið að tikka í mörg skyldubox á íslensku efni: Skilin(n) aðalhetja með ungling, limur, snjó-drónaskot, amk einn leikari sem leikur eins og hann/hún sé á sviði Þjóðleikhússins. Stuðullinn er 1,23 á að óþarfa nekt birtist hjá Nínu Dögg seinna meir. #brot
— Benedikt Gretarsson (@bennigretars) December 27, 2019
Úff aulahrollur af lélegum leik #Brot
— Arnþór Guðmundsson (@ArnthorG) December 27, 2019
Eina íslenska sjónvarpsefni sem til er þar sem eitt af eftirtöldu koma EKKI fram: brjóst, haglabyssa, snjóflóð, barn í eiturlyfjaneyslu eða dýr skorið á háls.
Pappírspési#brot— Heppinn Norðmaður (@bergur86) December 26, 2019
Að ávarpa barnið sitt “gaur” – solid uppeldisaðferð #brot
— Gunn (@gunnhilduraegis) December 26, 2019
Fyrsti þáttur af Netflix og Rúv seríunni #Brot lofar góðu! Einstaklega gaman að sjá @BergurEbbi og Eddu Björgvins sem eru hér saman á skemmtilegri stundu að dissa Netflix áhorf https://t.co/zCw9xtziS6
— Berglind Ósk (@berglind0sk) December 26, 2019
Hér eru glænýjar upplýsingar: Það eru til fleiri leikarar en þessi sömu 9 manns sem eru alltaf fengin í allt. #Brot
— Ólöf Hugrún (@olofhugrun) December 26, 2019
Ágætur fyrsti þáttur. Ýmsir leikarar sem hafa ekki sést í einhvern tíma með fína innkomu. Næstu 7 sunnudagar verða spennandi #Brot
— Davíð Már (@DavidMarKrist) December 26, 2019
Þvílíkur hraði og spenna . Þéttur fyrsti þáttur. #brot
— Sara Dögg (@saradoggsvan73) December 26, 2019
Starfsmenn @ruvohf eru orðnir svo skilyrtir af öllum lagaákærunum frá mér að þeim datt enginn annar í hug í hlutverk ríkislögreglustjóra… #Brot
— Magnus Ragnarsson (@MagnusRagnars) December 26, 2019
Íslenskt Sjónvarpsþátta bingo
Einhver ælir
Nekt
Lögga sem er skilin
Drunglega músik
Svekkt lögga
Magnús Ragnarson
Bíl keyrir lengi
drónaskot#brot— Gudni Halldórsson (@GudniKlipp) December 26, 2019
Ahhhh ekta íslenskt sjónvarpsefni að byrja, 2 mínútur liðnar og fyrsta dodo-ið búið. Þetta lofar hörkugóðu #brot
— Sigvaldi A Larusson (@sal0401) December 26, 2019
Ætlaði að fara að fylgjast með nýju íslensku sjónvarpsþáttaröðinni en hasstaggið #brot er bara um þýska brauðgerð. Hvar er fólk að fylgjast með þessu?
— Eiríkur Örn Norðdahl (@eirikurorn1) December 26, 2019
Og er @BergurEbbi bara líka tölvudúddi hjá lögreglunni. Man of many talents #brot
— Gucci mama (@LKarlsdottir) December 26, 2019