Hann er einbirni af bestu gerð sem elskar ekki bara fólkið sitt, heldur líka úthverfi, gufuböð, mótorhjól og hamborgara. Þessi þjóðþekkti skemmtikraftur og veitingamaður opnar heimili sitt í næsta þætti af Með Loga, fer í bíltúr um æskuslóðirnar, fær sér borgara og brosir út að eyrum.
Jóhannes Ásbjörnsson er næsti gestur Loga Bergmanns. Þátturinn kemur í Sjónvarp Símans Premium næsta fimmtudag og er sýndur í opinni dagskrá sama kvöld.