Leikarinn Jóhannes Haukur Jóhannesson er á lista yfir aðalleikara í nýrri víkingaþáttaröð sem streymisveitan Netflix er með í bígerð. Þættirnir, sem munu bera heitið Vikings: Valhalla, eru eftir höfund þáttanna Vikings, Michael Hirst.
Jóhannes mun fara með hlutverk Olafs Haraldssonar, eldri hálfbróður Harald, sem leikinn er af Leo Suter. Á meðal leikara í þáttunum verða þau Sam Corlett, Frida Gustavsson, Leo Suter, Bradley Freegard, Laura Berlin, David Oakes og Caralone Henderson.
Ekki er búið að staðfesta frumsýningardag en þættirnir eru væntanlegir í loftið síðla árs 2021 eða í byrjun ársins 2022.