Kósíheit í Hveradölum voru á sínum stað á rúv á laugardagskvöldið en hljómsveitin Baggalútur býður til jólatónlistarveislu í Skíðaskálanum í Hveradölum á laugardögum í desember.
Í þáttunum fá þeir góða gesti í heimsókn og flutt verða bæði gömul og ný jólalög.
Bríet og Sigurður Guðmunds eru hér með ljúfan flutning á jólalaginu Það snjóar.