Grínistinn og fyrrverandi borgarstjórinn, Jón Gnarr, hætti að borða dýraafurðir fyrir ári síðan og hefur misst 15 kíló á þessu eina ári.
Í nýjustu færslu sinni á Twitter fer hann yfir þá helstu heilsuávinninga sem hann finnur fyrir. Telur hann þar upp betri blóðþrýsting, betra hjarta og almennt betri líðan. Hann segist ætla að halda áfram á sömu braut.
been #vegan now for one year. its fun and I’ve lost 15 kg or 33 lbs. heart, blood pressure and lipids all better. will continue this lifestyle pic.twitter.com/2fdISAzpmT
— Jon Gnarr (@Jon_Gnarr) October 2, 2019