Tónlistarmaðurinn Kanye West var að gefa út tónlistarmyndband við lagið Eazy en myndbandið hefur heldur betur vakið upp misjöfn viðbrögð hjá fólki.
Í myndbandinu rænir hann manni, sem á greinilega að vera Pete Davidson, og grefur hann lifandi. En eins og svo margir vita er Pete Davidson í sambandi með Kim Kardashian, fyrrverandi konu Kanye.
Og ef einhver er í vafa um að maðurinn sem hann grefur í myndbandinu sé Pete, þá segir í enda myndbandsins: „Allir lifðu hamingjusamir til æviloka“…. „Nema Skete þú veist hver“.
En Kanye kallar Pete iðulega Skete á samfélagsmiðlum.
Sjáðu myndbandið hér að neðan.