Karl Berndsen, hárgreiðslumeistari, er látinn. Hann fæddist 1. ágúst 1964 og var því 55 ára gamall.
Hann rak stofuna Beauty barinn í Turninum í Borgartúni, lét að sér kveða í pólitík og fór meðal annars í framboð fyrir Flokk fólksins fyrir síðustu sveitarstjórnarkosningar.
Karl hefur undanfarin ár tjáð sig með opinskáum hætti um veikindi sín en hann greindist með eitlakrabbamein í byrjun árs 2014. Við tóku fjölmargar lífshættulegar aðgerðir og var hann meðal annars í dái í þrjá mánuði.