Rétt eftir klukkan þrjú í nótt fannst maður sem leitað hafði verið að í gærkvöldi eftir að hann skilaði sér ekki tilbaka úr veiði. Hann fannst látinn í Laxá Í Aðaldal. Dánarorsök mannsins er ókunn að svo stöddu.
Tilkynning barst til lögreglu rétt fyrir miðnætti um að mannsins væri saknað, hann hefði verið við veiði við Laxá í Aðaldal og hefði ekki skilað sér tilbaka að veiðitíma loknum.
Nálægar björgunarsveitir voru kallaðar út ásamt björgunarsveitum úr Eyjafirði og austan af landi sem aðstoðuðu með sérstökum búnaði. Einnig var óskað eftir aðstoð frá Landhelgisgæslunni.