Eldur kom upp í Grímseyjarkirkju í gærkvöldi og brann kirkjan til grunna á 20 mínútum.
„Það var allt orðið alelda þegar við komum. Kannski fimm mínútum eftir að ég kom hrundi turninn [kirkjuturninn]. Þá fuðraði þetta upp á svona 20 mínútum. Það var orðinn það mikill hiti og hvöss norðanátt með þessu. Það var því miður ekkert hægt að gera,” sagði Svafar Gylfason, slökkviliðsstjóri í Grímsey, í samtali við mbl.is
Ekki er vitað um eldsupptök og ekki er talið að neinn hafi verið inni í kirkjunni þegar eldurinn kom upp.