Kona um sextugt fannst látin í heimahúsi í Hafnarfirði í nótt. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu.
Konan var látin þegar lögregla kom á vettvang en tilkynning um málið barst lögreglu um hálftvöleytið í nótt. Tveir karlmenn, annar á sextugsaldri og hinn um þrítugt, voru á heimilinu og voru þeir báðir handteknir.
Rannsókn málsins er nú á frumstigi en rannsakað verður hvort mennirnir tveir hafi átt þátt í andláti konunnar. Lögreglan getur ekki veitt frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.
Þetta kemur fram á vef Fréttablaðsins