Kona féll fram af svölum í Hólahverfi í Breiðholti í gærkvöldi og er sögð alvarlega slösuð. Vitni sögðu í samtali við Fréttablaðið að karlmaður hefði hent henni niður af svölunum og hún lent á steyptum tröppum.
Lögreglan staðfesti að karlmaður hafi verið handtekinn og kona flutt á slysadeild en vildi lítið tjá sig um málið.
Maðurinn sem grunaður er um að hafa hrint konunni var handtekinn af lögreglu á staðnum og er vistaður í fangageymslu. Málið er í rannsókn lögreglunnar.