Leikkonan og áhrifavaldurinn Kristín Pétursdóttir verður þáttastjórnandi þáttarins Make Up, sem sýndur verður í Sjónvarpi Símans eftir áramót.
Í þáttunum, sem verða með leikjaþáttaívafi, verður keppt í förðun.
„Við vitum að það er aragrúi af förðunarsnilingum þarna úti sem eiga erindi í þáttinn og ég hvet öll þau sem vilja gera eitthvað meira úr þessu áhugamáli sínu að sækja um í þættina,“ segir Kristín í samtali við mbl.is
Umsækjendur geta sótt um í gegnum netfangið makeup@siminn.is og þurfa að senda inn nafn, kennitölu, mynd og ástæðu þess að þau vilja taka þátt. Valdir verða sex keppendur til þátttöku.